Nú hafa íslensk börn að tilefnislausu verið meðvitað notuð í tilraun fyrir erlendann lyfjarisa.

þríeykið

Aldrei í sögunni hafa börn á íslandi verið svo lítils metin sem nú, þar sem þau hafa að tilefnislausu verið notuð í tilraun fyrir erlenda lyfjarisa, sem treystir sér ekki til að bera ábyrgð á ístungulyfjunum, sem börn eru sprautuð með, með ófyrirséðum afleiðingum. Tilrauninni lýkur 2026.

Efnin eru með neyðarleyfi og má aðeins nota í neyð. Það er engin neyð sem snýr að börnunum varðandi veikina frægu og því með öllu ólögmæt aðgerð að sprauta börnin.

Börn hafa ekki látist úr Covid í milljónamanna samfélögum eins og Svíþjóð og Þýskalandi og heldur ekki hér á landi.

Börnum stafar engin hætta af Covid og eru kjörhópur til að mynda náttúrulegt hjarðónæmi, sem gagnast bæði þeim sjálfum og öllum öðrum í kringum þau.

Comirnaty and Pfizer-BioNTech COVID-19 Vaccine

Og þá var kátt í höllinni?

Hér er börnum boðið skemmtun með pomp og prakt mæti þau í sprautuna og  foreldrum er sagt að treysta sérfræðingunum.

sérfræðingar rangir í tvö ár

Þá minnist ég orða frelsarans. 

Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hlaðið upp grafir spámannanna og skreytið leiði hinna réttlátu og segið:
Ef vér hefðum lifað á dögum feðra vorra, hefðum vér ekki átt hlut með þeim í lífláti spámannanna. Þannig vitnið þér sjálfir um yður, að þér eruð synir þeirra, sem myrtu spámennina. Nú skuluð þér fylla mæli feðra yðar.
Höggormar og nöðru kyn, hvernig fáið þér umflúið helvítisdóm?
Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg.
Þannig kemur yfir yður allt saklaust blóð, sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs Sakaría Barakíasonar, sem þér drápuð milli musterisins og altarisins. Matt 23:29-35

Það mun fyrr eða síðar koma að uppgjöri.

Áttum okkur á að faðir Bill Gates sem ræður för í þessum málun var talsmaður Population Control og einn af stofnendum Planned Parenthood. Bill Gates er talsmaður Depopluation, eða fólksfækkunar, sem hann segir að hægt sé að framkvæma með bóluefnum.

Það eru séfræðingarnir sem sjá um flestu morðin. Hér eru deyddir spámenn, læknar og listamenn framtíðarinnar í móðurkviði, ekki einn, ekki tveir. Það eru allavega yfir þrjú þúsund börn deydd í móðurkviði á ári og Forsætisráðherra okkar sem er á sömu línu og Bill Gates sem sækja sömu samkomurnar í Davos, vill að fóstureyðingar verði lögleiddar fram að fæðingu.

Hér er rekin pólitísk stefna alþjóða elítunnar í Davos í heilbrigðismálum.

Hvernig er hægt að treysta slíkum fyrir börnunum okkar og nú vilja þeir sprauta börnin með drápsefni S1 brodd próteini sem er m.a. geldingarefni þar sem það ræðst á æxlunarfæri. Þau börn sem eru sprautuð, munu mögulega ekki eignast börn.

This document is prepared for humanity by Dr. David E. Martin.

Ekki treysta alltaf heilbrigðisstarfsmönnum og sérfræðingum.

Treystið frekar þeim sem sagði, leyfið börnunum að koma til mín, því þeirra er himnaríki.

Ef þeir eru ekki að vinna að læknaeiðnum og með þeim gildum sem hann boðar, þá getur þú ekki treyst því að þeir séu að vinna fyrir þig.

Guð gaf okkur náttúrulegt ónæmiskerfi sem ræður við þessa pest með tilheyrandi vítamínum að rannsóknir sýna.

Skírsla um S1 Broddpróteinið sem flokkast sem efnavopn.

Þetta verður allt gert upp elsku vinir. Lesið Malakí 4:1-3

 


mbl.is Nokkuð sátt með þátttöku í bólusetningum barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband