3.2.2012 | 10:46
,,Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir því að þeirra er himnaríki“(Mt. 5: 10).
Vitna ég hér í grein eftir Ársæl Þórarson 2 Febrúar 2012 SJÓNARMIÐ MANNLEGS RÉTTLÆTIS sem ég kann ekki tæknilega að tengja við þetta blog.
"Það væri nær fyrir kristið fólk að vísa til klaustranna sem voru, sjúkrahús, elliheimili og einu hjálparstofnanir fyrri tíma og líka voru klaustrin menntastofnanir og vísindastofnanir." (Ársæll Þórðarson)
Í stað þess vitna menntastofnanir þessa lands stöðuglega eins og rispuð plata í þessa svokölluðu Krossferð sem þessi grein fjallar um, til að styðja boðskap sinn um hversu slæm kristin trú sé og fátt hafi gott af henni leitt.
Sorgleg staðreynd og ekki að undra hversu margt menntað fólk nú á dögum er neikvætt gagnvart kristinni trú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2012 | 08:00
Blindur leiðir blindan
það er ýmislegt leift og samþykkt sem ekki ætti að vera það. Ýmislegt sem ógnar helgi mannlegs lífs.
Fólk á til að skella öllum trúarbrögðum og trú undir sama hatt. Það sér ekki greinamun á hvað trúarbrögð kenna, að sjálfsögðu er það hvað trúarbrögð kenna sem skiptir máli og sem svo mótar og hefur áhrif á fólk. Sumt til góðs og annað ekki.
Kristin trú sem hefur mótað okkar samfélag til þessa kennir umburðarlyndi kærleika, heiðarleika, verndun- og helgi mannlegs lífs og já guðsótta og góða siði. það er nú ekki þannig með alla trú því miður og er sum þeirra ógnun við þau almennu mannréttindi sem við teljum sjálfsögð hér í vestrænuum heimi,
Já talandi um skoðanafrelsi, þá fer það þverrandi því það eru sumar skoðanir taldar sjálfsagðar en aðrar ekki. Gefur fólk sér ekki svigrúm til að skilja á hverju skoðanir fólks eru byggðar en er fljótt að kalla sumar skoðanir fordóma og eru þá sjálfir í raun með fordóma varla vitandi hvað fordómar eru. En eins og orðið gefur til kynna þá þýðir orðið for-dómar að dæma eitthvað fyrirfram án þess að hafa kynnt sér það. Já og afhverju, jú það er búið að rugla svo í fólk bæði fréttamiðlar og menntastofnanir sem almenningur ber óbifandi traust til að fari með rétt mál, að fólk sumt veit ekki hvað snýr upp né niður í þessum málum sem öðrum en telur sig samt vita það. Já teljandi þessar stofnanir hlutlausar, þá er það langur vegur frá. Svo til að kórnóna þetta allt saman þá eru stórnvöld að sigla með þjóðina inní ESB án hennar samþykkis. Já blindur leiðir blindan og báðir falla í sömu gröf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)



trukona
ghordur
skari
rosaadalsteinsdottir

