Topp lögfræðingar hafa fjölda haldbæra sannana fyrir því, að það eru stundaðar massívar yfirhylmingar yfir dauðsföll vegna sprautana.

image_2021-10-08_093746Lögmaður frelsisbaráttu Attorney Tom Renz, varpar fram nokkrum sannleiksbombum þar sem hann segir „þeir hylma yfir stórfelld dauðsföll og stórfellda áverka. Hér fara þeir yfir ýmsar staðreyndir málsins byggða á áreyðanlegum opinberum tölum, og  m.a. farið yfir innihald sprautana. 

BREAKING: Attorney Thomas Renz reveals DoD data proving covid vaccines WORSEN infections and hospitalizations

DoD Documents: Over 70% "COVID" Hospitalizations are "Fully Vaccinated" Over 65. Vandamálið að það er gert lítið úr aukaverkunum sprautana og gert of mikið úr áhrifamætti þeirra. 

Sprauturnar uppfylla ekki skilyrði fyrir bóluefni. Virkar það, er það öruggt, og kemur það í veg fyrir útbreyðslu veikinnar? Nei. Núll! 

image_2021-10-08_105904"AI-knúið varnarmáladeildarforrit sem heitir „Project Salus“, rekið í samvinnu við JAIC (Joint Artificial Intelligence Center), hefur greint gögn um 5,6 milljónir sjúklinga sem eru 65 ára eða eldri. Gögnum var safnað saman frá Humetrix, rauntíma gagna- og greiningarpalli sem fylgist með árangri heilsugæslunnar. Lagaleg greining frá Thomas Renz frá Renz-Law.com er innifalin í brotlegu myndbandsviðtali hér að neðan."

Hann segir þessar aðgerðir stjórnvalda ekki bara stórlega skaðlegar heldur í alla staði ólöglegar. Hann fjallar um aðgerðirnar í Bandaríkjunum, sem er ekki annað að sjá en að sé sú fyrirmynd sem farið er í einu og öllu eftir hér á landi, þar sem hann rekur staðreyndirnar í málinu.

Hann bendir á þá staðreynd í því samhengi, að flestir sem liggja á sjúkrastofnunum vegna Covid, eru fullbólusettir. Þá virðast þeir sem hafa fengið sprauturnar vera þeir sem verst hafa verið útsettir fyrir því að veikjast af Delta-afbrigðinu. Þá benda þeir á hversu miklu skilvirkara ónæmiskerfi þeirra er, sem hafa myndað mótefni með náttúrulegum hætti. 

Hann segir að það þurfi ekki að efast eitt augnablik um hvað er í gangi.

Segir hann málið grafalvarlegt. Hann segir fjöldi fólks muni látast sem þyrfti annars ekki að látast. 

Á sama tíma skilar rannsóknarnefnd hér á landi áliti á tilkynntum alvarlegum aukaverkunum, þar sem er vægast sagt verið að gera lítið úr dómgreind og áhyggjum þeirra sem hafa tilkynnt alvarlegar aukaverkanir og um dauðsföll nákominna ættingja sinna.

Það blasir einnig við sú staðreynd að það er ekki mikil hefð fyrir að tilkynna aukaverkanir eða dauðsföll vegna læknamistaka hér á landi og það hefur ekki síst verið í þessu máli, þar sem fólk vill síður bera ábyrgð á því að aðrir fari ekki í sprautunar vegna hræðsluáróðurs stjórnvalda.

Það hefði kannski mátt gera þessu samfara rannsókn um hvernig málum er háttað með að fólk tilkynni læknamistök eða aukaverkanir hér á landi og þá sérstaklega vegna sprautana. 

Það má einnig benda á í þessu samhengi að lengi vel var flókið ferli við að tilkynna aukaverkanir og síður en svo var hvati til slíkra tilkynninga. Fólk vissi heldur ekki hvaða einkenni mátti tengja við afleiðingar sprautana. Þannig að það er nokkuð ljóst að ekki eru öll kurl komin til grafar í þessu máli og við rétt á byrjunarreit. Þannig að þessi niðurtaða rannsóknarnefndar er engan vegin tæmandi.

Ég hef persónulega hitt fjölda manns sem eru með mjög alvarlegar aukaverkanir eftir sprautuna. Fólk sem hefur ekki áður kennt sér meins. Einn sem ég hitti um daginn hefur lent í þrem hjartastoppum, maður sem hefur enga sögu um hjartakvilla fyrir sprautuna og engin saga um slíkt í fjölskyldunni. Hann hafði ekki tilkynnt aukaverkunina. Einn sem ég hitti um daginn, sagðist vera með stöðugan höfuðverk, aldrei glímt við það áður. Ekki tilkynnt. Margir tala um sífellda þreytu sem þeir eru ekki að ná að tengja við neitt, svo eitthvað sé nefnt. Svona fyrir utan ótímabæru dauðsföllin sem ég veit um.

Þeir bera því við að þeir sem hafa verið tilkynntir látnir vegna sprautana, hafi verið fullorðið fólk með fjölda undirliggjandi sjúkdóma. Átti það ekki líka við um þá sem eiga að hafa látist vegna Covid???? Það var aldrei efast um að Covid væri dánarorsökin, né nokkuð frekar rannsakað mér vitandi.

Það má benda á í því samhengi, að þrátt fyrir að fólk sé aldrað og með undirliggjandi sjúkdóma, þýðir það ekki endilega að það sé við dauðans dyr. Ég veit um of marga sem voru í fyrrnefndu ásigkomulagi, sem létust á fyrstu sólarhringum eftir sprautuna.

Blogg um tengt efni. Útfarastjóri bendir á fjölda dauðsfalla og víðtæk rannsókn staðfestir að covidaðgerðir eru ekki af heilsufarslegum ástæðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband