23.6.2021 | 10:05
Hvers vegna er verið að bólusetja alla, þegar stór hluti almennings er þegar með virkt ónæmi gegn veikninni, samkvæmt niðurstöðum T-frumurannsókna.
Helsti gallinn við að flýta svona mikið bólusetningunni við Kovid, er að það eru ekki öll kurl komin til grafar. Það hefur ekki gefist tími né rými til að líta yfir allar niðurstöður rannsókna, til að getað borið þær saman og vegið og metið til að sjá hver sé ákjósanlegasti kosturinn og besta leiðin að fara í stöðunni.
Það er búið að gera samninga og kaupa fullt af lyfi, sem hefur svo sýnt sig, að við þurfum minnst á að halda. Það á ekki og má greinilega ekki ræða það.
Það hafa fleiri rannsóknir verið að koma fram, sem gefa T-frumu-minninu hærri einkunn og er í raun galið að bólusetja alla, þar sem fjöldi fólks er þegar með ónæmi fyrir SARS-CoV-2, eftir að hafa áður glímt við SARS-CoV-1. Þar sem þá þykir vera næg kunnátta hjá T-frumum til staðar til að berjast við SARS-CoV-2 og ekki síður ef fólk hefur fengið Kóvid, þar sem samkvæmt rannsóknum geymist þekkingin í T-frumum 11 ár plús.
Það er talið að með að taka inn D-vítamín sé svo hægt að styrkja T-frumurnar enn frekar, í baráttunni við veiruna. Eru þær víst taldar í stjörnuliðinu í þessum bardaga við nýjan nokkuð kunnuglegan vírus.
Kosturinn með að mynda ónæmi með náttúrulegum hætti, er að það endist mun lengur.
Hér fyrir neðan er vitnað í nokkrar rannsóknir sem gerðar hafa verið sem styðja þá staðreynd, að T-frumurnar hafi það sem til þarf hjá mörgum okkar til að glíma við veikina. Hvers vegna er ekkert verið að taka tillit til þess, en bólusetja alla.
Fyrir utan að börn og fólk undir 70 ára aldri, á í lítilli sem engri hættu á að fara ílla út úr veikinni, jafnvel betur sett en gegn venjulegri flensum. Mun meira áhætta er fyrir þennann hóp að láta sprauta sig, það hefur þegar sýnt sig vegna fjölda andláta og alvarlegra aukaverkana. Ahverju er þá verið að því?
Fólki er haldið í stöðugum ótta, annaðhvort við veiruna eða möguleg höft og skaðlegar aðgerðir stjórnvalda.
WE LOST 330X MORE LIFE YEARS BY LOCKING DOWN INSTEAD OF JUST TREATING IT AS A FLU DR GERHARD SUNDB
Það myndast ekki rými fyrir almenning til að hugsa rökrétt til að getað tekið upplýstar ákvarðanir í svo mikilvægri ákvörðun fyrir líf sitt og þeirri, að bjóða sjálfan sig fram sem tilraunadýr á nýrri tækni lyfjarisana.
Fólk velur skyndilausnir bóluefnis, sem er það eina sem er á boðstólnum, þrátt fyrir að það hafi sýnt sig að margt annað virkar. Bara ef það geti mögulega losnað úr prísundinni og í von um, að losna við frekari aðgerðir stjórnvalda.
- Good News! Up To 50% Of Us May Be "Pre-Immune" To Covid-19
- Natural Immunity to COVID vs Vaccine Immunity
- SARS-CoV-2 infection induces long-lived bone marrow plasma cells in humans
- Covid-19: Do many people have pre-existing immunity?
- Persistent Cellular Immunity to SARS-CoV-2 Infection
- Memory T cell responses targeting the SARS coronavirus persist up to 11 years post-infection
- Robust T Cell Immunity in Convalescent Individuals with Asymptomatic or Mild COVID-19
- Ekki er talin ástæða til, né er ávinningur af því að bólusetja þá sem þegar hafa fengið veikina.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.