Hvað var það í spraununum sem var ekki nógu gott fyrir tengdamóður Landlæknis?

leki úr sjúkráskrá (2)Nú er hafin dauðaleit að þeim sem lak þeim upplýsingum, að það hefði borist beiðni um að tengdamóðir landlæknis yrði tekin af lista yfir þá sem ætti að sprauta með C-19 sprautinni, eins og um stórhættulegan glæpamann sé að ræða. Lögreglan hefur verið fengin til að rannsaka málið með tilheyrandi yfirheyrslum og kæmi ekki á óvart miðað við.. að pyndingartæki seinni heimstyrjaldarinnar, þættu við hæfi til notkunar við rannsókn málsins, enda grafalvarlegt mál :D.

Svona grínlaust, þá er hamast í gamla fólkinu á hjúkrunarheimilunum þar sem "NEI" hefur ekki verið tekið gilt sem svar við boði á efninu. Það liggja læknar og hjúkrunarfræðingar yfir gamla fólkinu, til að fá það til að þiggja efnið.

Ef það dugar ekki er hringt í ættingja til að fá þá til hjálpar, við að fá hinn aldrað til að þiggja efnið. Enda sagt lífsnauðsynlegt, sem vörn við þessum stórhættulega vírus sem enn hefur ekki verið einangraður og þar með ekki með marktækum hætti sönnuð tilvist á. Síðan hringir landlæknir á hjúkrunarheimilið og biður um að tengdamóður hennar verði tekin af lista yfir þá sem stendur til að fái sprautuna.

Það hlýtur að vekja spurningar fólks, þegar hún ásamt hennar samstarfsmönnum hamast í almenning í skjá landsmanna, daginn út og daginn inn, þar sem aldrei er nægjanlega vel undirstrikað hversu mikilvægt sé að fólk taki efnið. Lyfjastofnun hefur tekið út annað lyf af skrá, sem sýnt hefur að dugi við veikinni, til að hægt sé að réttlæta þessa innspýtingu í landann.

Sjaldnast er talað um allt það sem fólk gæti gert til að styrkja ónæmiskerfið og aðgerðir miða allar að því að veikja fólk, ásamt því að innleiða geðrænar truflanir hjá börnum, fullorðnum og viðkvæmum sálum. Hirða af fólki persónufrelsið í leiðinni við grímulausa innleiðingu á alríkisstefnu ríkisstjórnarinnar, þar sem almenningur ræður engu.

En já þá vitum við að fólk er sett á listann óumbeðið og án þess að það sé rætt við aðstandendur, síðan gleymist alveg að láta fólk vita að þau eru þátttakendur í tilraun á innspýtingu á gagnabreytandi tæknihugbúnaði sem aldrei áður hefur verið reyndur á mönnum. Tilraun sem lýkur í fyrsta lagi í lok árs 2023.

Áhugaverðar upplýsingar um tæknifítusa sem er að finna í efninu, ásamt fleiru tengdu efninu með Dr.Carrie Madej. Dr.Carrie Madej fer yfir efnin í sprautunum. 

Um hvernig efnið er ekki bóluefni: IMPORTANT INFORMATION ABOUT image_2021-06-25_113533THE SCAM VACCINE DR. DAVID MARTIN AND DR. JUDY MIKOVITS SPEAK OUT! 

DEL BIGTREE INTERVIEWS DR. ANDREW KAUFMAN MD - AN INCONVENIENT COVID TRUTH Dr.Andrew Kaufman MD, í þætti með Del Bigree, sem er þekktur úr þáttunum Doctors.

Áhugaverður þáttur þar sem farið er yfir það hvernig þessu er háttað með að veiran hefur aldrei verið einangruð og þannig sönnuð tilvist á. 

Tengt efni er grein í Fréttablaðinu. Leki úr sjúkraskrá ættingja landlæknis kærður til lögreglu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ef þetta fer fyrir dómstóla þá opnast ef til vill möguleiki á að maður geti leitað réttar síns gagnvart Reykjavíkurborg

"Þá ber að gjalda varhug við því að umboðsmanni séu afhent. gögn og persónuupplýsingar sem hann hefur ekki óskað eftir. Er þá tekið mið af þeim reglum og sjónarmiðum sem eiga við um þagnarskyldu þeirra sem starfa á vegum opinberra aðila og höfð hliðsjón af 3. t.ö1u1. 1. mgr. B. gr- laga nr. 90/20L8, um persónuvernd. og meðferð persónuupplýsinga, um að víð meðferð persónuupplýsinga skuli þess gætt að þær séu nægilegar, viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar.

Ég fæ ekki séð að ofangreindar upplýsingar hafi þýðingu fyrir fyrirspurn mína, sem laut eingöngu að afhendingar n.t..t. gagna, vegna kvörtunarinnar og ekki verður séð að hún hafi gefið Reykjavíkurborg tilefni til þess að veita þær upplýsingar en í svörum borgarinnar er ekki útskýrt nánar af hverju þær voru veittar. Ég teI þess vegna ástæðu til að benda Reykjavíkurborg á að hafa framangreind sjónarmið framvegis í huga"

Umboðsmaður Alþingis

Grímur Kjartansson, 20.3.2021 kl. 13:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband