12.12.2024 | 13:04
Ertu tilbúinn? Nýr faraldur 2025 hefur verið undirbúin og æfður.
Sagan endurtekur sig, fyrst nýr forseti andstæðra afla er kominn á sjónarsviðið, þá æfa mótherjar nýjan faraldur, hvort það er tilefnið eða hvort þetta er bara framhald af áður gerðri áætlun er ekki ljóst sem stendur.
En ertu tilbúinn? Nú hafa Bill Gates og WHO hafa keyrt eftirlíkingu af næsta heimsfaraldri, sem kemur bráðlega til ríkisstjórnar nálægt þér árið 2025. Johns Hopkins Center for Health Security í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO) og Bill & Melinda Gates Foundation framkvæmdu aðra æfingu heimsfaraldurs í Brussel, Belgíu, 23. október 2022. Fyrirbærið er kallað SEERS, Severe Epidemic Enterovirus öndunarfæraheilkenni 2025.
Það má lýsa þessari óttastjórnun og óttaáróði sem hernaðarlegri aðgerðar, og sér í lagi þegar að lausnin sem er kynnt til leiks er skaðlegri en vandinn. Þá er endurtekið það sama og gerðist í Október 2019, þegar kóvid-óttaáróðurinn var æfður af Bill and Melida Gates foundation, World Economic Forum ásamt John Hopkins Center á Event201. Hræðsluáróður til að taka niður og lama efnahag þjóna og innleiða nýtt stjórnafar.
Um tilgang og markmið undirbúningsins Kóvid Október 2019.
Þá getum við spurt okkur hvernig mun þetta líta út hér á landi þegar við erum með komin með forseta sem starfar með þeim sem halda út svona óttastjórnun. Þá er einnig spurning hvernig mun ný ríkistjón lýta út í þessu samhengi, verður það ríkisstjórn sem dansar með þessum öflum, eða ríkisstjórn sem sér við slíkum áróðri..
Hér tjáir Halla Tómasdóttir við vini sína hjá Alþjóða Efnahagsráðinu World Economic Forum um viðhorf sín gagnvart almenningi sem þýðist ekki slíkar róttækar óttastjórnunaraðgerðir, þar sem hún segir að það þurfi að taka hart á slíkum og koma í veg fyrir að fólk spreði að hún segir fölskum upplýsingum. Það má gera ráð fyrir samkvæmt þessu treysti hún blint því sem fer fram hjá þessum öflum, sem hún hefur verið í sterkum samskiptum við, að mér sýnist minnst um eða yfir áratug og þar sem hún er B-teymisstjóri hjá. En gríman er að falla af þeim sem fyrir þessu fara, sem virðast ekki hafa eins góðan ásetning og leit út fyrir í byrjun, hvort hún hefur áttað sig á því veit ég ekki, en það eru mjög margir farnir að gera. Það væri allavega óskandi að hún gerði það.
Áttum okkur á, að á Íslandi dansa, sveitastjórnir, fyrirtæki og stofnanir um 200 talsins með þessum öflum. Það má búast við að flestir flokkar sem hafa verið kosnir til að stjórna landinu séu þar með í hópnum. Það eru þeir sem vilja vinna með alþjóða elítunni, þar er Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn, Samfylkingin, að mér sýnist Viðreisn, allavega. Ekki Miðflokkurinn, vonandi ekki Flokkur Fólksins. Á ekki von á því.
Kæru landar, vörumst úlfinn - Rauðhetta!
Hér er meira efni sem ég hef tekið saman, beintengt þessu efni;
- Sem og ofar. Saga og innleiðing endurræsingarinnar miklu!
- Svona er Íslandi stjórnað.
- og svo Glópalistunum tryggður penni á Bessastaði
- Rót hnattrænna krísa
- Ný sóttvarnalög aðför að borgaralegum réttindum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.