MEÐ ÖLLU ÓFÆRT AÐ TREYSTA NIÐURSTÖÐU FORSETAKOSNINGANNA.

Ég á erfitt með að treysta niðurstöðum kosninga, þegar tugþúsundir kjörgagna hafa legið í opnum umslögum í opnum körfum í Ráðhúsi þar sem var greið leið að atkvæðaseðlum undir umsjá hagsmunaaðila ákveðinnar pólitískrar afla  og sér í lagi frambjóðanda.. sem hefur geysilegra hagsmuna að gæta.

Kjörgön í Ráðhúsinu..

Að auki er sá aðili sem hafði umsjá með skoðanakönnunum, sem var spilað fram til að stýra lýðnum og velja frambjóðendur í pallborðsumræður sérstakur ráðgjafi sama frambjóðanda. Þá hefði verið létt verk ef vilji væri fyrir hendir að skipta út umslögum með atkvæðaseðlum úr stærri opnu umslögunum og láta rýma við skoðanakannanir.

Það er grunsamlegt hvernig allt í einu voru ákveðnir frambjóðendur komnir með yfirburða fylgi í skoðanakönnunum og spilað fram sem afarkostum í lok baráttunnar sem leiddi svo til niðurstöðu kosninga með ákveðnum hætti.

Íslenska spillingarlestin eða hvað???? Helstu World Economic Forumliðar landsins.. 

IMG_1974

 

Eigendur Anton JL kaupa Gallup

 

 

HALLUR HALLSSON rannsóknablaðamaður skrifar:

HVER TELUR ÍSLAND LÝÐRÆÐISRÍKI ...

Hver telur Ísland lýðræðisríki ...Já eða Nei.

Okkur er sagt að 25 þúsund utankjörfundaratkvæði séu í húsi.

Okkur er sagt að verið sé að “rannsaka og forvinna atkvæði.“ Það sé hvorki meira né minna en 700 manna teymi sem "...er skipulagt eins og her. Þetta er fallegt,“ segir Eva Bryndís Helgadóttir oddviti kjörstjórnar.

Eva Bryndís LMG lögmönnum, spillltasti lögmaður landsins er oddviti til að forvinna atkvæði. Þetta er ekki hægt að skálda. Á árum áður voru kjörkassar utankjörfundaratkvæða opnaðir síðast af öllum. Nú er allt undir kontról hjá elítunni og atkvæði til “rannsóknar og forunnin“ af innvígðum og innmúruðum hersveitum ráðhússins. EVA HLIÐVÖRÐUR Eva Bryndís Helgadóttir hjá LMG lögmönnum er hliðvörður Vg, sérstakur hliðvörður Katrínar Jakobsdóttur í “Fósturvísamálinu.“ Eva Bryndís sér um að rógbera, ofsækja og siga ákæruvaldi LRH, Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu, á hjónin Gunnar Árnason og Hlédísi Sveinsdóttur. Hún sér um að koma í veg fyrir að óbreyttir borgarar nái fram réttlæti og um tugur barna fái þekkt uppruna sinn. Eva Bryndís er á bak við kærur á hendur mér, Halli Hallssyni. Lögreglan í Hafnarfirði sendi sveit norður yfir heiðar til þess að yfirheyra karlinn sem sakaður er um hegningarlagabrot fyrir “umsáturs-einelti“. Lagagrein þessari er beitt í fyrsta sinn gegn íslenskum blaðamanni, líklega vestrænum blaðamanni. Mér er neitað um málsgögn. Sakarefni er á bak við luktar dyr. Um málið er ofinn leyndarhjúpur.

THORODDSEN & THORODDSEN Virðulegt ættarnafn lögreglumanns var gert að leyndarmáli við yfirheyrslu. Grímur Thor Bollason er Thoroddsen í þjóðskrá náfrændi Katrínu Jakobsdóttur Thoroddsen. Svona vinnur kerfið. Eva Bryndís var kölluð “slitadrottningin“ eftir Hrun, fékk eiginmann sinn í Arctica Finance til að selja þrotabú Byrs sem eitt sinn voru sparisjóðir vélstjóra, Hafnarfjarðar, Kópavogs og Norðlendinga. Eva Bryndís kann til verka. Hún skellti Byr á koddann.

GALLUP HLAUPATÍK Gallup mælir Kötu Jakobs, Höllu Hrund og Höllu Tómasar nánast saman á marklínu. Stjórnarformaður Gallup er kosningastjóri Katrínar Jakobsdóttur, Huginn Freyr Þorsteinsson var áður hlaupastrákur Steingríms J. Sigfússonar. Þetta finnst Katrínu bara í lagi. Allt undir kontról hjá elítunni. Gallup og fjölmiðlarnir stilla strengina. Okkur er sagt að Ísland sé svo fullkomið að ekki þurfi kosningaeftirlit Samvinnu- & öryggisstofnunar Evrópu.

Þegar kemur að sannindum eru þær elítustöllur fjarri lagi. Katrín hefði “...sjálf stutt að hafa engin tímamörk...“ á fóstureyðingu fullburða barns. Það sjokkeraði þjóðina. Það féllu 200 milljónir króna ofan af himnum á Höllu Tóma í félag hennar Sunnunes „sem Jón stýrði.“ Hún hafði enga aðkomu að því upplýsti Viðskiptablaðið. Halla Hrund rak sjálfstæða utanríkisstefnu þegar hún færði argentínskum ráðherra bréf Arctic Circle Assembly. Það styggði utanríkisráðuneytið. Halla Hrund gat ekki sagt satt og rétt frá, fremur en um samskiptastýru sína sem stóð fyrir hertöku Austurvallar. Svona er sjöunda valdaár Katrínar Jakobsdóttur ...

Skúli, Hlédís og Gunnar ÁrnasonMálið er meira en lítið áhugavert og hér hlaðið fjölda heimilda um málið í nýlegu viðtali við Hlédísi Sveinsdóttur og Gunnars Árnasonar 

Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Árnason í viðtali í myndbandi við S. Skúlason

Tengt efni:

Hver sér um skipar kjörstjórnir og heldur utan um kosningar á Íslandi.

Alvarlega vegið að lýðræðinu.. Meira um frambjóðandana tvo sem heyuðu einvígið í lok kosningabaráttunar fyrir tilstilli svokallaða skoðanakannana.. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband