7.6.2025 | 10:55
Sterkur vilji til að afmá tákn þjóðríkisins, þjóðfánann.
Það eru til leiðir til að taka út ummerki þjóðfánans. Það er leitt að segja það en þeir sem pirrast mest yfir þjóðfánanum eru yfirleitt alþjóðasinnarnir sem eru með tögl og höld hjá flestum fyrirtækjum, sveitafélögum og stofnunum landsins, þ.á.m. fréttamiðlum. Það má gera ráð fyrir að þessu sé strýrt af Samtökunum Festa á Íslandi.
Fréttamiðlar keppast um að tala niður samstöðufundinn gegn núverandi útlendingastefnu stjórnvalda sem meirihluti landsmanna telur að sé genginn af göflunum og kynda undir áróður um ólæti sem lítið fór fyrir þrátt fyrir að útsendarar no border hafi mætt með óeirðar á staðinn sem fljótt dóu út, enda örfáir til móts við þann fjölda sem mætti til að styðja málstaðinn um þarfar breytingar, sem voru um 1.000 manns glaðra íslendinga og einnig útlendingar sem þykir vænt um land og þjóð, með sínum forsendum og núverandi gildum.
Fögnuður yfir þjóðhátíðardeginum er á undanhaldi og skemmtunum fer fækkandi, t.d. er ekkert að gerast orðið í Rvk á kvöldin á Þjóðhátíðardaginn á meðan Menningarnótt er gefið mun meira rými fyrir skemmtanahald. Það er helst að skynja að nú sé það álitið einhverskonar glæpur og rasismi að þykja vænt um land sitt og þjóð og með því að fagna deginum m.a. að heiðra forfeður okkar sem byggðu landið og skyldu okkur eftir sig arfleifð sína, arfleiðina sem þeir höfðu af erfiðum haft.
Meira um það fyrir neðan í bloggi.
Góðar friðsamur og fallegar sumarkveðjur. Áfram Ísland!
Tengt efni.
Saga og innleiðing Nýtt upphaf, Endurræsingarinnar miklu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)