11.11.2024 | 10:13
Nýkjörinn Forseti Bandaríkjanna segir kynferðislegum áróðri og áreitni gagnvart börnum í skólum landsins stríð á hendur.
Hann upplýsir um áform um að stoppa læknisfræðileg inngrip inn í kynþroska barna.. segja áróður í skólum um að börn séu mögulega í röngum líkama stríð á hendur, segir það vera ofbeldi gegn börnun. Þá vill hana gera rannsókn á lyfjum sem notuð eru til bælingar og í læknisfræðilegum tilgangi í þessum efnum, ásamt því ætlar hann að standa vörð um réttindi foreldra til að fá að vera upplýstir um hvað sé verið að kenna börnum sínum í skólum landsins. Hann vill gera fjölskyldu mótelinu föður móður og barns hærra undir höfði. Undir hans stjórn muni hann enda þessa klikkun sem hefur verið keyrð áfram af öfga demókrataískri stefnu undir stjórn Biden undanfarin árin og fleira í þessum töluðu orðum..
President Trump´s Plan to Protect Children from "Left-Wing Genger Insanity.
Fólk sem hefur gengist undir slíkar meðferðir hefur verið að stíga fram í auknu mæli og varar við slíkum óafturkræfum aðgerðum.
Detransitioner Reveals Shocking Truth on trans Surgery.
Hér á landi er sama upp á teningnum og fær slíkur áróður sem er hafin yfir gagnrýni vegna viðkvæmni þess efnis að ekki megi særa eða móðga neinn, nema jú heilbrigða blygðunarkennd barna. Já elsku börnin. Eins og fólki sé ekki yfirleitt sama um kynferðislegt athæfi fullorðins fólks svo lengi sem það virðir mörk annarra og lætur börn annara í friði. Þetta er nú orðið meiri vitleysan.
Her í skólum fær Vika 6 sitt pláss þar sem börn eru hvött til kynferðislegs athæfis og prófa sig áfram í þeim efnum þegar það hefur litinn tilfinningalegan þroska til. Það hanga plaköt með myndum um kynferðislegs athæfi barna og fullorna saman og fleira í þeim dúr. Þá hefur Samtökum "78 sem eru búin að hasla sér völl með hjálp sveitafélaganna verið falið að ala upp börn fólks án þeirra samþykkis í þessum efnum og jafnvel fengið umboð til þess að skera úr um hvort börn eigi að sæta kynleiðréttingu með bælingarlyfjum ofl hvað sem foreldrum finnst um. Ef foreldrar eru ósammála þessum áætlum eru börnunum jafnvel talið trú um að foreldrar þeirra séu transfóbik og best sé ekki að taka mark á foreldrum sínum í þessum efnum. Foreldrum er svo talið trú um að þau gætu verið að raska geðheilsu barns síns til framtíða standi þau í vegi fyrir slíkri meðferð, því frekar vilji þau eiga transbarn en ekkert barn. En er varað í auknum mæli við slíkum áróðri sem virðist eiga við engin sem lítil rök að styðjast, en er þessu oft öfugt farið, þegar fólk vaknar upp við að hafa gert óafturkræf mistök, stundum verið að leita að viðurkenningu eða samþykki frá einhverju hópi sem það geti fundið sig í á einhverju viðkvæmu tímabili lífsins.
Þá hefur komið á daginn að væntingar barna og fullorðna til slíkra meðferða hafa ekki staðið undir væntingum og ekki skilað þeirri bættu líðan sem þau áttu von á, né hafi skilað þeirri breytingu sem var lofað, því eftir sem áður situr fólk uppi með sinn upprunalega litning, en á móti getur nú ekki átt börn með eðlilegum hætti.
Eru hér stórar ákvarðanir á ferðinni fyrir óþorskuð börn að taka afstöðu til, þegar það veit ekki enn hvort það ætlar að vera, lögga, slökkviliðsmaður, hjúkka eða forseti.
Já það er vandlifað og sér í lagi nú á tímum, en þetta vill Trump sporna við og feta orðið fleiri í hans fótspor. Með góðri kveðju.
Tengt efni:
Skólinn orðin aðal Cultið í íslensku samfélagi.
Fráraflar kynfræðsluna fyrir börn undir 10 ára.
Þau kenna ungum og óstyrkum sálum að lifa í taumlausum girndum.
Bloggar | Breytt 19.11.2024 kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)